Þorsteinn hét maður. Hann var Egilsson, Skalla-Grímssonar, Kveld-Úlfssonar hersis úr Noregi en Ásgerður hét móðir Þorsteins og var Bjarnardóttir.
Þorsteinn bjó að Borg í Borgarfirði. Hann var auðigur að fé og höfðingi mikill, vitur maður og hógvær og hófsmaður um alla hluti.