En lífið hans er ekki bara vinna og skóli. Hann gerir ýmislegt annað í frístundunum. Flesta miðvikudaga fer hann í bíó af því að þá er miðinn á hálfvirði. Um helgar fer hann stundum á diskótek. Hann getur ekki farið oft af því að það kostar svo mikið. Það er líka dýrt að taka leigubíl heim. Miguel finnst hann heppinn að geta bæði verið í vinnu og í skóla.