Textafræði er fræðigrein sem rannsakar forna texta og forn tungumál. Upphaflega merkti hugtakið ást (á grísku philo-) á orðum og bókmenntum (á grísku -logia af logos sem þýðir „orð“). Innan akademískrar hefðar ýmissa þjóða merkir hugtakið „textafræði“ í víðum skilningi rannsókn á tungumáli og bókmenntum þess og því sögulega og menningarlega samhengi sem þarf til að skilja bókmenntaverk og aðra texta tungumálsins. Þannig felur textafræði í sér rannsókn á málfræði, mælskufræði og sögu tiltekins tungumáls auk þess að fela í sér túlkun á höfundum þess. En svo víður skilningur á hugtakinu er orðinn fremur sjaldgæfur nú um mundir og hugtakið „textafræði“ er einkum farið að merkja rannsókn á textum út frá sjónarhóli sögulegra málvísinda.